Content area
Full text
Hver er í fjölskyldunni? Skilnaðir og stjúptengsl Höfundur: Valgerður Halldórsdóttir Vaka-Helgafell. Reykjavík. 2012 225 bls. ISBN 978-9979-2-2198-2
Bókin Hver er í fjölskyldunni? Skilnaðir og stjúptengsl, eftir Valgerði Halldórsdóttur, kennara og félagsráðgjafa, MA, fjallar um tengsl og aðstæ ður í hinni margbreytilegu fjölskyldu í samfélagi nútímans þar sem skilnaður hjóna og para ásamt myndun stjúpfjölskyldna er orðinn algengur viðburður. Það er fagnaðarefni að út skuli vera komin bók um íslenskan veruleika á þessu sviði. Margt hefur gerst síðustu áratugi hvað varðar söfnun fróðleiks um stjúptengsl og stjúpfjölskyldur á íslandi með rannsóknum og skrifum af ýmsu tagi. Engu að síður er hér um tímamótaverk að ræ ða. Bókin er hvort tveggja í senn, hugsuð fyrir almenning ásamt því að nýtast fagaðilum og öðrum sem að málefnum fjölskyldna koma.
Formála að bókinni skrifar dr. Sigrún Júlíusdóttir, félagsráðgjafi og prófessor við Háskóla islands. Þar rekur hún á greinargóðan hátt þá þróun og þann breytileika sem átt hefur sér stað hjá fjölskyldunum í landinu, þróun sem tekur á sig margvísleg birtingarform og skapar ótal fjölskyldumynstur.
Bók Valgerðar er byggð á faglegri þekkingu höfundar ásamt tiltæ kum rannsóknum og klínískri vinnu en síðast en ekki síst nýtir höfundur sína eigin persónulegu reynslu í skrifum sínum sem gerir verkið í heild bæ ði trúverðugt og hagnýtt.
Bókin skiptist í tíu kafla. í hverjum þeirra eru teknir fyrir ákveðnir þæ...





