Content area
Full text
Margir líta svo á að einvera kalli á einmanaleika, en henni þarf þó ekki endilega að fylgja skortur á nánu og persónulegu samneyti við annað fólk. Hugmyndir okkar um einveru eldri kynslóðarinnar tengjast yfirleitt neikvæ ðri líðan, svo sem einmanaleika, en við lítum síður svo á þegar yngra fólk á í hlut. Viðhorf almennings til efri áranna eru frekar neikvæ ð og oft draga fjölmiðlar upp skakka mynd af öldruðum, mynd sem tengist vandamálum af ýmsu tagi en kostir efri áranna vilja gleymast í umræ ðunni. Aldraðir eru ekki einsleitur minnihlutahópur sem hefur önnur eða stæ rri vandamál en yngri kynslóðir. Það geta verið ýmsar ástæ ður fyrir einmanaleika en það þýðir ekki endilega að hinn aldraði upplifi hann oftar eða sterkar en yngri kynslóðir (Roberts, Kaplan, Shema og Strawbridge, 1997).
Einmanaleiki er óæ skileg tilfinning sem skyggir á lífsgæ ði og hamingju þeirra sem fyrir henni verða. Ef einmanaleiki er algengur meðal aldraðra þá þarf að bregðast við því og beina forvarnarstarfi í þá átt að leita lausnamiðaðra úrræ ða og þjónustu við þá sem líður illa, því að tilfinningaleg heilsa skiptir ekki síður máli en líkamleg heilsa (WHO, 2009). Meira hefur verið fjallað um félagslega einangrun en einmanaleika í rannsóknum og umfjöllun opinberra aðila hér á landi, t.d. í stefnumótun íslenskra stjórnvalda, en gera verður ráð fyrir báðum þessum þáttum.
Hér á landi skortir rannsóknir um einmanaleika og tilfinningalega heilsu eldri borgara. Sú eigindlega rannsókn sem hér er lýst er framlag mitt í þá veru en hún er byggð á meistararitgerð minni í öldrunarfræ ði í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands.
Markmið rannsóknarinnar var að athuga hvort einmanaleiki sé algengari á efri árum en ella, hvaða áhrifaþæ ttir liggi þar að baki og kanna hvaða þjónusta komi þeim eldri borgurum að gagni sem finna til einmanaleika.
Einangrun er einn sá þáttur sem skoðaður var og leitast var við að skipta einangrun upp í félagslegaog tilfinningalega einangrun. Skoðaðar voru niðurstöður íslenskra og erlendra rannsókna og þæ r bornar saman við eigindlega rannsókn sem var framkvæ md á árunum 2005-2007 en gagnaöflun byggðist á viðtölum við sex eldri borgara á aldrinum 78-86 ára.
Ahrifaþæ ttir einmanaleikans
Einmanaleiki og félagsleg einangrun eru skyld hugtök sem oft eru notuð saman eins og beint samband sé þar á milli...





